01.02.2012 20:51
Hvolpar að leik !
Ari Hrafn 3 ára fór með hvolpunum út að leika í síðustu viku áður en snjónum rigndi öllum í burtu. Eins og sést skemmtu allir sér konunglega
Við eigum tvær gullfallegar og skemmtilegar tíkur eftir óseldar tilbúnar til afhendingar. Verða án efa mjög góðir og skemmtilegir fjölskylduhundar. Fleiri myndir í albúmi J gots.

Skrifað af Unnur Hagalín
11.01.2012 11:28
Spondylosis niðurstöður
Þar er gaman að segja frá því að síðasta föstudag fengum við góðar fréttir frá Noregi þegar spondylosis niðurstöður ISShCH Hagalíns DJ´Destiny komu í hús. Bella er fyrsti og eini boxer hundurinn á Íslandi sem hefur verið myndaður og fengið SPO niðurstöður á Íslandi hingað til eftir því sem ég best veit. Þar sem Norski kennel klúbburinn hefur samþykkt að lesa úr spondylosis myndum fyrir okkur á Íslandi, mun ég framvegis láta mynda alla boxer hunda sem ég rækta undan.
Bætti við nokkrum nýjum myndum af hvolpunum í J gotinu, myndirnar má sjá í albúminu J got. Tíkurnar eru að þroskast virkilega vel og ég á í töluverðum vandræðum að gera upp við mig hverri ég ætti að halda eftir :)

Bætti við nokkrum nýjum myndum af hvolpunum í J gotinu, myndirnar má sjá í albúminu J got. Tíkurnar eru að þroskast virkilega vel og ég á í töluverðum vandræðum að gera upp við mig hverri ég ætti að halda eftir :)

Skrifað af Unnur Hagalín
27.12.2011 22:50
J - got 8 vikna
Þá eru hvolparnir í J - gotinu orðnir 8 vikna gamlir og 4 þeirra farnir að heiman. Við eigum ennþá 2 tíkur eftir óseldar. Allir hvolparnir eru vel gerðir og skemmtilegir og að sjálfsögðu hver öðrum fallegri :)

Skrifað af Unnur Hagalín
15.12.2011 23:51
Hagalíns Hooked On A Feeling
Hagalíns Hooked On A Feeling er undan C.I.E ISCh Socotra She´s Like The Wind og Denver v.d SonnenAufgang. Happy eins og hún er kölluð flutti til Noregs 9 vikna gömul og býr þar í góðu yfirlæti. Hún hefur lítillega verið sýnd með góðum árangri, hún var besti hvolpur tegundar og í 3. sæti í grúppu dómari var Hans Almgren frá Svíþjóð og á boxer sérsýningu varð hún besti hvolpur sýningar, dómari var Bernard Kafka frá Frakklandi. Við erum auðvitað voðalega montin af henni

Skrifað af Unnur Hagalín
15.12.2011 23:32
J- got
Hvolparnir í J - gotinu eru að verða 7 vikna gamlir og stækka meir og meir með degi hverjum. Þeir eru hver öðrum fallegri og virðast allir hafa erft frábæra skapgerð foreldra sinna. Aldrei fyrr hafa fæðst boxer hvolpar hér á landi undan jafn mikið heilbrigðisskoðuðum foreldrum. Við erum afar ánægð með hvolpana sem við höfum fengið undan Denver sem hélt heim til Ungverjalands um síðustu helgi, við söknum hans mikið enda einstaklega blíður og skemmtilegur hundur. Við eigum 3 tíkur eftir óseldar úr þessu goti, áhugasömum er velkomið að hafa samband. Hér má sjá myndir af hvolpunum.

Skrifað af Unnur Hagalín
21.11.2011 10:06
Sýning HRFÍ 19.-20. nóv
Við fórum á haust sýningu HRFÍ á laugardaginn og gekk virkilega vel. Úrslit í boxer urðu eftirfarandi:
Besti hundur tegundar BOB, C.I.E ISShCH Hagalíns DJ´Dynamite Ck, Cacib og BIG 4, besta tík tegundar BOS var Hagalíns Exciting með Ísl. meistarastig og Cacib, Hagalíns Hot´N Sweet var besti hvolpur tegundar BPIB, og C.I.E ISCH Socotra She´s Like The Wind var besti öldungur tegundar 8 ára gömul. Domino Ivella HOuse fékk very good og mjög góða umsögn en hún er ennþá óörugg með sig eftir flutningana frá Úkraínu og hingað heim. Þess ma´geta að C.I.E ISShCH Hagalíns DJ´Dynamite "Nóbel" er stigahæsti boxer ársins hjá HRFÍ.

C.I.E ISShCH Hagalíns DJ´Dynamite

Hagalíns Exciting

Hagalíns Hot´N Sweet 8 mánaða
Í boston terrier var tíkin okkar hún Hagalíns Fröken Fix besti hundur tegundar BOB, hún fékk Ísl. meistarastig og Cacib.

Hagalíns Fröken Fix
Við erum afar ánægð með helgina og viljum þakka öllum þeis sem hjálpuðu okkur um helgina kærlega fyrir hjálpina

- 1
Flettingar í dag: 195
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 182
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 22663
Samtals gestir: 4007
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 18:31:19